Orðsending vegna aðalfundar
Kæru golfarar og félagsmenn í GÖ
Vegna sóttvarnaraðgerða stjórnvalda er óljóst hvort við getum haldið aðalfund félagsins á réttum tíma svo vel sé. Samkvæmt lögum félagsins á að halda aðalfund á tímabilinu 15. nóvember til 15. desember. Eins og staðan er nú getum við eingöngu haft um 20 fundarmenn í golfskálanum (getum skipt honum í tvö hólf) sem okkur hugnast ekki þar sem um 50-70 meðlimir eru venjulega að mæta.
Við viljum að sem flestir geti mætt á fundinn og að fjöldatakmarkanir trufli sem minnst. Því ákvað stjórn að bíða með að taka ákvörðun um tímasetningu aðalfundar. Þegar nýjar reglur koma frá yfirvöldum í byrjum desember munum við skoða hvaða möguleika við höfum. Það sem við höfum í huga er annaðhvort að halda fundinn laugardaginn 12. desember eða að fresta fundinum í ljósi aðstæðna fram yfir áramót.
F.h. Stjórnar GÖ
Knútur G Hauksson, formaður
Sveinn Steindórsson, framkvæmdastjóri