Nýir starfsmenn

Ágætu félagar.

Eins og ykkur er sjálfsagt kunnugt um þá réðum við tvo starfsmenn við ræsingar og eftirlit um helgar hjá okkur.

Nöfn þeirra eru Ása Hauksdóttir og Helgi Harrysson og skipta þau helgum á milli sín. Þeirra starf er að taka vel á móti spiulum, hafa eftirlit með að allir greiði sín vallargjöld, aðstoða við ræsingar á mótum og ekki síst hafa eftirlit með að spilarar haldi leikhraða.

Við biðjum ykkur um að taka vel á móti þessum nýju starfmönnum okkar, sýna þeim fyllstu kurteisi og fara eftir þeim tilmælum sem þau gefa.

Á skortkortum er meðal annars tekið fram að spilarar skuli:

Halda uppi eðlilegum leikhraða

Hleypa framúr ef ekki tekst að halda í við næsta holl og

Njóta golfleiksins.

Stjórn og starfsfólk GÖ

Previous
Previous

Hola í höggi

Next
Next

Opna Kristalsmótið á laugardaginn