Golfkúbbur Öndverðarness

 Öndverðarnes er orlofsjörð Múrarameistarafélags Reykjavíkur og Félags Iðn- og tæknigreina (FIT).

Golfklúbbur Öndverðaness var stofnaður 1974 af nokkrum félögum Múrarameistarafélags Reykjavíkur og Múrarafélags Reykjavíkur.  Félögum í klúbbnum hefur fjölgað jafn og þétt í gegnum árin og eru þeir nú um 640 talsins.
Stöðugt hefur verið unnið að endurbótum á bæði golfvelli og aðstöðu, meðal annars var tekinn í notkun nýr golfskáli árið 1994 og viðbygging og endurbætur árið 2010.  Völlurinn varð 18 holur árið 2008 og er í dag frábær völlur fyrir kylfinga á öllum getustigum.

Golfklúbburinn hefur verið aðili að GSÍ frá árinu 1998.