Golfskáli og veitingar

Golfskáli Golfklúbbs Öndverðarness er glæsilegur og rúmar allt að 150 manns í sæti. Hann hentar því vel fyrir hópa og veislur.

Veitingamenn okkar hjá Komos Kitchen bjóða góðar veitingar á góðu verði og gera þér tilboð i veitingar fyrir bæði smærri og stærri hópa.


Golfskálinn opnar daginn eftir vinnudag að vori og er opinn til 30. september þegar skráning er á völlinn og aðstæður leyfa.

Fyrirspurnir varðandi hópabókanir og veitingar berist á komoskitchen1@gmail.com

Sími í golfskála er: 482 3380