Aðalfundarboð 2026
Aðalfundur Golfklúbbs Öndverðarness verður haldinn laugardaginn 21. nóvember 2026 í golfskálanum okkar í Öndverðarnesi kl 13:00
Dagskrá fundarins er eftirfarandi og samkvæmt lögum félagsins:
Fundarstjóri og fundarritari kosnir eftir tilnefningu.
Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning.
Skýrsla og ársreikningur borinn upp til samþykktar.
Umræða og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar.
Ákveða árgjöld félagsins.
Kosning stjórnar og varamanna í stjórn
Kosning tveggja endurskoðenda.
Önnur mál
Samkvæmt 11. grein laga GÖ skulu formaður, stjórnarmenn og varamenn tilkynna hvort þeir sækjast eftir endurkjöri eða ekki með tveggja vikna fyrirvara. Kosið er um formann, tvo aðalmenn í stjórn til tveggja ára og tvo varamenn.
Guðmundur Pálmason sem verið hefur formaður undanfarin ár gefur ekki kost á sér í embætti formanns.
Ingi Gunnar Þórðarson sem sat í varastjórn síðasta árið býður sig fram í embætti formanns.
Guðlaug Þorgeirsdóttir og Gígja Hrönn Eiðsdóttir eru báðar að ljúka 2ja ára stjórnarsetu. Gígja Hrönn gefur áfram kost á sér til stjórnarsetu næstu tvö ár en Guðlaug Þorgeirsdóttir gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.
Harpa Þorláksdóttir og Þröstur Jón Sigurðsson voru kosin til 2ja ára stjórnarsetu í fyrra og eru því ekki í kjöri að þessu sinni.
Guðjón Bragason sem verið hefur í varastjórn síðasta árið gefur nú kost á sér til aðalstjórnar næstu tvö árin.
Fullgildir félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu eða formanns skulu tilkynna það skriflega með tölvupósti á á netfangið gogolf@gogolf.is fyrir kl 13. laugardaginn 14. nóvember.
Með framboði til stjórnarsetu skal tekið fram í hvaða embætti viðkomandi býður sig fram, Formanns, stjórnarmanns eða varamanns í stjórn.
Fyrir fundinum liggur breyting á 3. grein laga klúbbsins.
Núverandi 3. grein hljómar svo:
Félagar geta allir orðið sem styðja tilgang félagsins og óska aðildar með skriflegri umsókn enda samþykki stjórnin umsókn á fundi sínum. Stjórninni er heimilt að vísa inntökubeiðnum til ákvörðunar félagsfundar. Aðalfundur ákvarðar um fjölda félaga í félaginu og er stjórn bundin af þeim fjölda við ákvörðun um inntöku nýrra félagsmanna.
Tillaga að breytingu á 3. grein sem liggur fyrir fundinum:
Félagar geta allir orðið sem hafa áhuga á að styðja tilgang félagsins og óska aðildar með skriflegri umsókn, enda samþykki stjórnin umsókn á fundi sínum. Stjórninni er heimilt að vísa inntökubeiðnum til ákvörðunar félagsfundar.
Aðalfundur ákveður hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks sem félagið getur boðið hverju sinni. Æski fleiri félagsaðildar en unnt er að verða við skal setja umsækjendur á biðskrá. Stjórn skal setja og birta reglur um biðskrána.
Reykjavík 6. nóvember 2026
Stjórn Golfklúbbs Öndverðarness