Bikarkeppni við Kiðjabergskonur

Bikarkeppni GKB - GÖ | Sunnudaginn 25. júní

Liðakeppni kvenna í Golfklúbbi Kiðjabergs gegn Golfklúbbi Öndverðarness. Það lið sem fær flesta punkta hampar bikarnum * Hámarksforgjöf er 36. Leiknar verða 18 holur Fyrsti rástími kl. 14.

Veitt eru verðlaun fyrir 1.-3. sæti í punktakeppni og verðlaun fyrir besta skor án forgjafar.

Nándarverðlaun á 7. og 16. holu.

Mótsgjald: 3.500 kr. Skráning á Golfboxinu.

Skráningu lýkur föstudaginn 23. júní kl. 18:00.

Pantanir á golfbílum fara fram í gegnum gkb@gkb.is

Dýrindis súpa hjá Rakel í golfskálanum eftir hring kostar 3.000 kr, og greiðist við skráningu á Golfboxinu góða

*(Lagður er saman fjöldi punkta fjörgurra efstu kylfinga í hvoru liði og það lið vinnur sem er með flesta punkta samanlagt).

Previous
Previous

Hattamót BYGG og GÖ

Next
Next

Hola í höggi