Hattamót BYGG
Hið árlega Hattamót BYGG fór fram í blíðskaparveðri að venju laugardaginn 13. júní. Alls voru 58 konur skráðar til leiks og var mikið líf og fjör í skálanum þegar konur mættu uppábúnar með allskonar hatta og skraut.
Úrslit:
1.sæti Guðrún Ósk Bergþórsdóttir og Diljá Baldursdóttir
2.sæti: Sólveig Bentsdóttir og Aðalheiður Sigursveinsdóttir
3.sæti: Eygerður Helgadóttir og Hugrún Elfa Hjaltadóttir
Lengsta teighögg á 7.braut: Harpa Iðunn Sigmundsdóttir
Nándarverðlaun á 2.braut: Inga Rut Gylfadóttir 3,36 metrar
Nándarverðlaun á 5.braut: Björg Jónsdóttir 8,2 metrar
Flottasti hatturinn: Arna Harðardóttir og Margrét Jónsdóttir
Kvennanefnd GÖ þakkar öllum þátttakendum fyrir frábæran dag og Begga og Gísla fyrir stöðuna á Rabbabarnum þeir klikka ekki á sínum þætti í að gera umgjörð mótsins skemmtilegri.