Hola í höggi í Meistaramóti
Kristján Freyr Óðinsson gerði sér lítið fyrir á 2. hring Meistaramóts GÖ og fór holu í höggi á 18. braut Öndverðarnesvallar. Höggið var slegið með fleygjárni. Holan var í hvarfi bakvið glompu en ljóst var strax frá upphafi að höggið var gott og nálægt pinna. Þegar á flötina var komið, var engan bolta að sjá. Kristjáni til mikillar ánægju lá hann í holunni. Við óskum Kristjáni til hamingju með afrekið, en þetta er fyrsti ásinn á árinu í Öndverðarnesi.