Klúbbfatnaður og mátunardagur

Klúbbfatnaður GÖ -  kynning og mátunardagur, laugardaginn 20.maí milli kl.13 – 15 í golfskála GÖ 

Laugardaginn 20.maí kynnum við nýjan klúbbfatnað GÖ. Um vandaðan og fallegan golffatnað er að ræða frá Glenmuir og eru vörurnar pantaðar inn í gegnum golfverslunina Golfskálinn. Félagsmenn geta skoðað, mátað og pantað sér fatnað á laugardaginn kemur en einnig verður boðið upp á mátun og pöntun á vinnudegi og við opnun golfvallar sem vonandi verður fljótlega. Hér gefst kærkomið tækifæri á að eignast gæða golffatnað á góðu verði en flíkurnar eru allar merktar með logoi GÖ.

Að neðan eru myndir, en sjón er sögu ríkari!

Kíkið endilega við á laugardaginn 

 Stjórnin




Previous
Previous

Opna Kristalsmótið á laugardaginn

Next
Next

IMG Golf Fitness - Ný námskeið að hefjast!