Meistaramót GÖ 2023
Meistaramót GÖ var haldið dagana 29. júní – 1. júlí. Alls voru 120 félagar skráðir til leiks og er það metþátttaka.
Nýjir klúbbmeistarar eru:
Klúbbmeistari kvenna: Eva Fanney Matthíasdóttir 233 högg samtals
Klúbbmeistari karla: Sindri Snær Skarphéðinsson 226 högg Samtals
Þess má geta að þau hafa hvorugt unnið Þennan titil áður en verið í toppbaráttunni fyrr. Eva Fanney er einungis 14 ára, efnilegur kylfingur hér á ferð.
Mótið fór í alla staði vel fram, veðrið var með þokkalegu móti alla dagana og framkvæmdin öll til fyrirmyndar.
Úrslit mótsins í heild má sjá á golf.is en sigurvegarar í flokkunum eru:
Meistaraflokkur kvenna: Meistaraflokkur karla:
Eva Fanney Matthíasdóttir 233 högg Sindri Snær Skarphéðinsson 226 högg
1.flokkur kvenna: 1.flokkur karla:
Helga Þórdís Guðmundsdóttir 269 högg Illugi Örn Björnsson 241 högg
2.flokkur kvenna: 2.flokkur karla:
Irma Mjöll Gunnarsdóttir 271 högg Guðlaugur Guðlaugsson 245 högg
3.flokkur kvenna: 3.flokkur karla:
Íris Gunnarsdóttir 307 högg Alfreð Frosti Hjaltalín 273 högg
4.flokkur kvenna: 4.flokkur karla:
Steinunn Sveinsdóttir 114 punktar Guðmundur S. Maríasson 116 punktar
Opinn flokkur kvenna (2 dagar): Opinn flokkur karla:
Kristrún Gunnarsdóttir 76 punktar Jón Ríkharð Kristjánsson 77 punktar
GÖ þakkar öllum fyrir frábæra daga.