Vel heppnuð Uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð GÖ fór fram í gær, laugardaginn 12. september. Alls léku 122 kylfingar í Texas Scramble móti þar sem veitt voru verðlaun fyrir efstur 3 sætin bæði með og án forgjafar.

Föstudaginn 11. september léku Björn Sigurður Vilhjálmsson og Sigrún Bragadóttir til úrslita í Bikarkeppni GÖ, þar sem leikin er holukeppni. Björn sigraði 3/2. Þau fengu afhent verðlaun á Uppskeruhátíðinni.

Ingó Veðurguð skemmti gestum að verðlaunaafhendingu lokinni. Mikið fjör var á skemmtuninni þar sem m.a. var boðið uppá spurningakeppni milli kynjanna, ásamt því sem félagsmenn stigu á svið með Ingó. Frábær skemmtun.

Katrín Arnar Kjartansdóttir og Sindri Snær Skarphéðinsson (t.v.) sigruðu án forgjafar og Helga Þórdís Guðmundsdóttir og Ólafur Magnús Birgisson (t.h.) sigruðu með fogjörf

Björn Sigurður Vilhjálmsson og Sigrún Bragadóttir léku til úrslita í Bikarkeppni GÖ

Ingó Veðurguð og Bjössi Sax buðu uppá frábæra skemmtun


Next
Next

Meistaramót GÖ 2026