Sjálfboðavinna

Golfklúbbur Öndverðarness hefði aldrei orðið að veruleika nema vegna mikils og óeigingjarns framlags fólksins í Öndverðarnesi. Sjálfboðavinnan náði langt út fyrir meðlimi golfklúbbsins því sumarbústaðaeigendur voru meira en til í að leggja sitt af mörkum til að skapa betra og fallegra umhverfi í kringum sig.

Mest öll vinna við uppbyggingu golfvallarins fyrstu 40 árin var unnin í sjálfboðavinnu. 

Þetta frábæra vinnuframlag fólksins í Öndverðarnesi var í byrjun í formi uppbyggingar á flötum og teigum, þar sem verkin voru unnin með haka, hrífu og skóflu. Algengt var að þegar undirbúin var vinna undir torf á flötum og tyrfa þurfti strax í framhaldinu þá voru gjarnan mættir 20 - 30 einstaklingar til að vinna verkið sem kláraðist hratt og vel.

Rétt er að minnast líka á byggingu sundlaugarinnar, sem er partur af heildarupplifun sumarhúsaeigenda í Öndverðarnesinu - þar var allt unnið í sjálfboðavinnu.

Bygging fyrsta golfskálans árið 1977 var unnin í sjálfboðavinnu og bygging núverandi golfskála eða réttara sagt golfmiðstöðvarinnar var að stóru leyti unnin í sjálfboðavinnu. 

Eftir að golfklúbburinn komst í álnir og styrkti tekjustofna sína,  hefur sjálfboðavinnan við uppbyggingu og breytingar á golfvellinum horfið að miklu leyti. Vinnudagurinn í maí lifir þó ennþá góðu lífi.