Aðalfundarboð

Aðalfundarboð 2023

Aðalfundur Golfklúbbs Öndverðarness verður haldinn laugardaginn 25. Nóvember 2023 í golfskálanum okkar í Öndverðarnesi kl 13:00

Dagskrá fundarins er eftirfarandi og samkvæmt lögum félagsins:

1.     Fundarstjóri og fundarritari kosnir eftir tilnefningu.

2.     Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.

3.     Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.

4.     Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning.

5.     Skýrsla og ársreikningur borinn upp til samþykktar.

6.     Umræða og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar.

7.     Ákveða árgjöld félagsins.

8.     Kosning stjórnar og varamanna í stjórn

9.     Kosning tveggja endurskoðenda.

10.  Önnur mál.

Engar lagabreytingar liggja fyrir fundinum

Samkvæmt 11. grein laga GÖ skulu formaður, stjórnarmenn og varamenn tilkynna hvort þeir sækjast eftir endurkjöri eða ekki með tveggja vikna fyrirvara. Kosið er um formann, tvo aðalmenn í stjórn til tveggja ára og tvo varamenn.

Guðmundur Pálmason gefur áfram kost á sér til formanns stjórnar

Brynjar Stefánsson og Hannes Björnsson er báðir að ljúka 2ja ára stjórnarsetu, og gefa áfram kost á sér til stjórnarsetu næstu tvö ár

Knútur G. Hauksson gefur áfram kost á sér til varamanns í stjórn til eins árs

Guðjón Bragason gefur áfram kost á sér til varamanns í stjórn til eins árs

Guðlaug Þorgeirsdóttir og Dagmar María Guðrúnardóttir  voru kosnar til 2ja ára stjórnarsetu í fyrra og er því ekki í kjöri að þessu sinni.

 

Fullgildir félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu eða formanns skulu tilkynna það skriflega með tölvupósti á á netfangið gogolf@gogolf.is fyrir kl 13. laugardaginn 18. nóvember.

Með framboði til stjórnarsetu skal tekið fram í hvaða embætt viðkomandi býður sig fram, Formanns, stjórnarmanns eða varamanns í stjórn.

 

Stjórn Golfklúbbs Öndverðarness

 

Previous
Previous

Fréttir frá aðalfundi

Next
Next

Lokamót GÖ