Aðalfundarboð 2022

Aðalfundur Golfklúbbs Öndverðarness verður haldinn laugardaginn 3. desember 2022 í golfskálanum okkar í Öndverðarnesi kl 14:00

Dagskrá fundarins er samkvæmt lögum félagsins:

1.     Fundarstjóri og fundarritari kosnir eftir tilnefningu.

2.     Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.

3.     Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.

4.     Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning, ársreikningur borinn upp til samþykktar.

5.     Umræða og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar.

6.     Ákveða árgjöld félagsins.

7.     Kosning stjórnar og varamanna í stjórn

8.     Kosning tveggja endurskoðenda.

9.     Önnur mál.

Engar lagabreytingar liggja fyrir fundinum

Samkvæmt 11. grein laga GÖ skulu formaður, stjórnarmenn og varamenn tilkynna hvort þeir sækjast eftir endurkjöri eða ekki með tveggja vikna fyrirvara. Kosið er um formann, tvo aðalmenn í stjórn til tveggja ára og tvo varamenn.

Knútur G. Hauksson núverandi formaður, hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér til formanns en gefur kost á sér til varamanns í stjórn

Guðmundur Pálmason núverandi varaformaður stjórnar býður sig fram til formanns

Brynjar Stefánsson núverandi ritari, var kosinn til tveggja ára í fyrra og situr því áfram í eitt ár

Hannes Björnsson núverandi stjórnarmaður, var kosinn til tveggja ára í fyrra og situr því áfram í eitt ár

Guðlaug Þorgeirsdóttir núverandi gjaldkeri, gefur kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu

Sigríður Björnsdóttir núverandi varamaður,  gefur ekki kost á sér til varamanns stjórnar

Aðalsteinn Steinþórsson núverandi varamaður, gefur ekki kost á sér til varamanns stjórnar

Fullgildir félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu eða formanns skulu tilkynna það skriflega með tölvupósti á á netfangið gogolf@gogolf.is fyrir kl 14. laugardaginn 26. nóvember.

Stjórn hefur nú þegar borist tvö framboð til stjórnarsetu, frá Guðjóni G. Bragasyni og Dagmar M. Guðrúnardóttur.

 

 

 

 

 

 

Previous
Previous

Við minnum á aðalfund 2022

Next
Next

Lokun vallar og kerrugeymslu