Lokun vallar og kerrugeymslu

Lokun vallar 

Nú er að líða að lokum á þessu golftímabilinu, sjaldan hefur verið eins lengi opið inn á sumarflatir eins og nú en nú er völlurinn farinn að setja sig í vetrarbúning og er þá best að loka inn á sumarflatir og teiga. 

Við munum taka af flötunum á fimmtudaginn næstkomandi 27. október. Á sama tíma munum við færa inn á vetrarvöll, þar sem holur verða teknar fyrir utan flatir og teigmerki stillt upp þar sem er ákjósanlegt að slá frá.  

Öll húsgögn vallarins sem hægt er að taka inn verða tekin inn og komið fyrir í geymslu, því er mikilvægt að félagsmenn fjarlægi settin sem eru í kerrugeymslunni. Mánudaginn 31. október verður kerrugeymslunni læst utan vinnutíma starfsmanna, því er best að fjarlægja settin eins fljótt og hægt er. 

Kær kveðja vallarstjóri.  

Previous
Previous

Aðalfundarboð 2022

Next
Next

Eingöngu opið fyrir félagsmenn á völlinn