Ingi Gunnar nýr formaður

Aðalfundur GÖ fór fram í gær í golfskálanum í Öndverðarnesi en fundurinn var mjög vel sóttur en alls mættu um tæplega 150 félagsmenn til fundarins.

Guðmundur Pálmason flutti skýrslu stjórnar og kynnti ársreikning. Ársreikningur var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

Ingi Gunnar Þórðarson kynnti lagabreytingu á 3. grein laga klúbbsins. Tillagan var samþykkt. Uppfærð lög klúbbsins er að finna á heimasíðunni undir. Lög

Tillaga stjórnar um árgjöld næsta árs var felld, sem og tillaga stjórnar um 15.000 kr. golfbílagjald. Samþykkt var að hækka árgjöld klúbbsins um 10%.

Árgjöld næsta árs verða því þannig:

Full gjald 26-69 ára - 127.600

70 ára og eldri - 89.320

16-25 ára ungmenni- 51.040

Öryrkjar - 76.560

Börn yngri en 15 ára - 24.750

Skálagjald - 10.000 kr. (greitt af öllum fullorðnum félagsmönnum 26 ára og eldri)

Golfbílagjald - 5.000 kr.

Ingi Gunnar Þórðarson var kjörinn formaður klúbbsins. Hann var einn í framboði.

Í aðalstjórn til tveggja ára voru kjörin með 79 atkvæði hvort, Gísli Björgvinsson og Berglind Helgadóttir.

Fyrir í aðalstjórn sitja Harpa Þorláksdóttir og Þröstur Jón Sigurðsson.

Í varastjórn voru kjörnir þeir Jón Ólafur Bergþórsson með 104 atkvæði og Þorvarður G. Hjaltason með 51 atkvæði.

Alls voru greidd 140 atkvæði í stjórnarkjöri.

Skoðunarmenn voru kjörnir Stefán B. Gunnarsson og Knútur G. Hauksson.

Litlar umræður voru um skýrslu stjórnar og ársreikning. Aðalsteinn Steinþórsson gerði nokkrar athugasemdir um að bæta mætti framsetningu ársreiknings og Þröstur Eggertsson lýsti yfir ónægju með nýtt merki klúbbsins, þar sem ný meint múrskeið væri líkari tertuspaða. Í gamla merkinu sé kastskeið, en við notkun hennar þarf að nota sveiflu sem er nánast sú sama og golfsveiflan.

Fundarstjóri var Garðar K. Vilhjálmsson og fundarritari Gígja Hrönn Eiðsdóttir.

Nú um mánaðamótin munu birtast í netbanka félagsmanna 2 kröfur með gjalddaga 1. febrúar 2027 og 1. apríl 2027 og eindaga 15. dags sömu mánaða. Krafan verður fyrir árgjaldi og skálagjaldi samtals, skipt í tvennt. Þannig munu einstaklingar fá tvær kröfur að fjárhæð 68.800, eldri en 70 ára 49.660, öryrkjar 43.280. Ungmenni fá kröfur uppá 25.520, þar sem þau greiða ekki skálagjald.

Ákvörðun fyrri aðalfundar um að heildarfjöldi klúbbmeðlima skuli miðast við 780 félagsmenn 26 ára og eldri stendur. Ný stjórn mun skrifa reglur um biðlista. Þar sem félagafjöldi er nú umfram 780, verða nýir félagar ekki teknir inn í klúbbinn fyrr en ríflega 30 félagsmenn hafa sagt sig úr félaginu fyrir komandi ár.

Nýr formaður klúbbsins Ingi Gunnar Þórðarson færði Guðlaugu Þorgeirsdóttur (14 ár), Guðmundi Pálmasyni (12 ár) og Gígju Hrönn Eiðdóttur (2ár) blómvendi og þakkaði þeim fyrir stjórnarstörf í aðalstjórn klúbbsins.

Fundargerð aðalfundar verður birt innan tíðar hér á síðunni undir skjöl.

Ingi Gunnar, nýr formaður, færði Gígju, Guðlaugur og Guðmundi blómvendi sem þakkarvott fyrir störf þeirra í stjórn klúbbsins.

Next
Next

Aðalfundur 2026