Kynningarfundur 3.maí
Velheppnaður kynningarfundur var haldinn í Golfskálanum okkar Öndvegi, laugardaginn 3. maí. Um 70 manns mættu þar sem Margeir fór yfir helstu verkefni sumarsins, kynnti það sem þegar er búið að gera og / eða er í vinnslu.
Við í Öndverðarnes eigum mikið af flottu fólki sem ætíð er tilbúið í að gera góðan golfklúbb enn betri.
Tinna Ólafsdóttir, nýr veitingastjóri GÖ kynnti matseðil sumarsins og bauð fundarmönnum upp á snittusmakk sem mæltist vel fyrir hjá fundargestum
Að fundi loknum var gestum boðið að skoða nýja golfherminn sem staðsettur er í kjallara. Er það mál manna að sú framkvæmd hafi tekist einkar vel er mikil tilhlökkun hjá félögum að prófa herminn.
Við minnum á fyrirhugaðann vinnudag, laugardaginn 17. maí og vonumst eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta og eiga góðan dag með góðum félögum. Nánar kynnt síðar.