Hola í höggi
Ingibjörg Bára Hilmarsdóttir vann það afrek að fara holu í höggi á 2.braut með kvennagolfinu föstudaginn 30.maí 2025. Það voru fjölmargar GÖ konur sem samglöddust sinni konu með draumahöggið og leysti Ester, formaður kvennanefndar hana út með fallegri gjöf.
Til hamingju Ingibjörg Bára með draumahöggið.