Aðalfundur 2025
Aðalfundarboð 2025
Aðalfundur Golfklúbbs Öndverðarness verður haldinn laugardaginn 22. nóvember 2025 í golfskálanum okkar í Öndverðarnesi kl 13:00
Dagskrá fundarins er eftirfarandi og samkvæmt lögum félagsins:
1.Fundarstjóri og fundarritari kosnir eftir tilnefningu.
2.Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
3.Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins.
4.Umræður um skýrslu stjórnar og ársreikning.
5.Skýrsla og ársreikningur borinn upp til samþykktar.
6.Umræða og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar.
7.Ákveða árgjöld félagsins.
8.Kosning stjórnar og varamanna í stjórn
9.Kosning tveggja endurskoðenda.
10.Önnur mál
Engar lagabreytingar liggja fyrir fundinum
Samkvæmt 11. grein laga GÖ skulu formaður, stjórnarmenn og varamenn tilkynna hvort þeir sækjast eftir endurkjöri eða ekki með tveggja vikna fyrirvara. Kosið er um formann, tvo aðalmenn í stjórn til tveggja ára og tvo varamenn.
Guðmundur Pálmason gefur áfram kost á sér til formanns stjórnar
Brynjar Stefánsson og Hannes Björnsson eru báðar að ljúka 2ja ára stjórnarsetu. Hannes gefur áfram kost á sér til stjórnarsetu næstu tvö ár en Brynjar Stefánsson gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa.
Guðlaug Þorgeirsdóttir og Gígja Hrönn Eiðsdóttir voru kosnar til 2ja ára stjórnarsetu í fyrra og eru því ekki í kjöri að þessu sinni.
Guðjón Bragason gefur áfram kost á sér til varamanns í stjórn til eins árs
Ólafur Jónsson sem verið hefur í varastjórn síðasta árið gefur nú kost á sér til aðalstjórnar næstu tvö árin.
Fullgildir félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til stjórnarsetu eða formanns skulu tilkynna það skriflega með tölvupósti á á netfangið gogolf@gogolf.is fyrir kl 13. laugardaginn 15. nóvember.
Með framboði til stjórnarsetu skal tekið fram í hvaða embætt viðkomandi býður sig fram, Formanns, stjórnarmanns eða varamanns í stjórn.
Reykjavík 7. nóvember 2025
Stjórn Golfklúbbs Öndverðarness